allt það sem mér dettur í hug

Sunday, February 19, 2006

kominn heim

Posted by Picasa
jæja þá er æðisleg skíðaferð að baki og maður kom heim úr sól og fjöllum í rigningu og leiðinda veður hvernig stendur á þessu . Fyrir þá sem ekki vissu þá fórum við fjölskyldan og Guðrún Inga í skíða ferð í viku til Flachau ég er búinn að hlakka til síðan þetta var ákveðið og varð ég ekki fyrir vonbrigðum enda verð ég það sjaldnast í Austurríki. Það var sól hjá okkur alla vikuna nema ein dag og þá tókum við bara frí dag sem var líka fínt. það eina sem setti skugga á þessa yndislegu viku var að ég endaði hjá lækni ( eins og öll hin skiptin sem ég fer til austurríkis) já en það var ekki alvarlegt og var því reddað á engumtíma (svona um það bil). við vorum á góðu hoteli og þrátt fyrir kvef þá var manni vel skemmt á kvöldin þar sem ÓL byrjuðu daginn sem við komum þanngi að það að hafa kvef og eyrna verk var ekki svo slæmt maður horfði bara á endursýnigar á kvöldinn :o)
Síðan var að sjálfsögðu farið í Spar og þar voru keyptir nokkrir nauðsynjahlutir sem ekki fást á landinu góða.
Annars er ekki mikið að frétta þar sem ég kom heim á lau þá hefur ekki mikið gerst nema gönguferð í dag með Ástu+1,Stebba,Glóa,Grím og Mikka í hvalfirði það var fínt að hreyfa sig.
En það er vinnan á morgunn og þar verður súkulaði að hætti austurríkis manna( að sjálfsögðu).
en já ég er mætt á klakkan með gleði og hik því það er altaf gaman í útlöndum en alltaf gott að koma heim.