allt það sem mér dettur í hug

Monday, February 06, 2006

þetta er nú meiri letin

það er búinn að ríkja mikil bloggleti hérna hjá mér en við skulum sjá hvað við getum gert í því.
En og aftur komst ég að því í dag hvað heimurinn er lítill og eins og fólk veit finnst mér hann stundum oflítill.
ég fór í sakleysi mínu til Ástu og var að segja henni að það væri 4 dagar í venjulegri vinnu og svo starfsdagur á föstudaginn Ásta spurði mig hvað við ætluðum að gera ég fór yfir dagskránna og sagði henni frá ferðini í Þorlákshöfn því það Jóhanna sem er að vinna með mér er þaðan og að mamma hennar sé með leikskólan hún fór að spyrja meira og meira og það kom í ljós að hún og Jóhann voru vinkkonur þegar þær voru litlar og mömmur þeirra þekjast. Harpa sem er líka að vinna með mér hún er tengd Svövu hans Jónasar og þegar sandra var búinn að segja mér bloggið sitt þá fan ég bloggið þeirra Jóhönnu og Dagnýjar og þar er tengill á síðuna hans Baldurs sem er bróðir hans Gísla. eins og ég segji þetta er of lítill heimur en það er gaman af honum.
Ég var í ofsalegu tuð skapi í dag en það er búið verð það ekki á morgunnþví mér leiðist að vera að tuða.
en já ég þarf að spjalla við hana jóhönnu á morgunn og sjá hvort hún muni eftir henni Ástu.
ennars hef ég það fínt er í góðum gír það er gaman í vinnuni hver veit nema þetta blogg komi mér í blogg gírinn.
kv
gsm