allt það sem mér dettur í hug

Sunday, December 18, 2005


fannst kominn tími á mynd!!!
en annars er klukkan orðinn alltof margt hún er rúmlega eitt og ég er dauðþreytt en samt ekki farinn að sofa hvað er málið með það? en já er búinn að vera hjá póstinum frá því á fimmt og það er fínt þetta er svolítið skríttið því við vinnum allveg hver fyrir sig sem er fínt að mörgu leiti. Ég er búinn að vera í mosó og er mjög feginn það er fátt sem er nýtt fyrir mér.

talaði við Kötu um daginn og viðfórum að hugsað að núna er sá tími sem ég var ný kominn til sölden. nú er búið að byggja nýtt hús sem fólk er í og er það víst svaka flott og fullt af fólki sem býr þar ekki svona takmarkaður fjöldi eins og áður.
Ég hlakka svo til næstu mánuða ég þarf reyndar að finna afslöppunar genið í mér ég veit það er þarna grafið niður en það þarf að finna það ég reikna ekki með að finna það í fyrstu umferð en ég mun finna það og hver veit hvað ég geri þá HMMMM síðast þegar ég fann það þá fór ég til sölden ég ætla reyndar að reyna að halda mig á landinu góða. þó að útlönd séu heillandi þá verða þau að landinu góða eftir smá tíma það er nú það merkilega íþessu öllu.
ég er að reyna að fá vinnu á leikskóla og ég sótti um ég bjóst reyndar við því að ég fengi hringinu og að ég yrði boðuð í viðtal þar sem það er því lík umræða um að það vanti starfsfólk á leikskóla. það var hringt í mig og mér sagt að þau hefðu mjög mikin áhuga á mér á einumskóla og að það yrði hringt í mig aftur eftir nokkra daga því að þeim þætti tíminn frá janúar til 1 júní væri of stuttur. ég var nú pínu hissa að heyra þetta en ok og ég heyri í þeim aftur eftir helgi hvort að þær vilji mig í þennan stutta tíma sem er samt 5 mánuður.
það var nú bara síðast í byrjun október sem ég pældi mikið í því að 5 mánuðir væru bara slatti tími en það fer kannski eftir samhengi.
en já planið er að finna afslöppunar genið fara í ræktina vinna og njóta þess að vera til :o)

hei ég var hef ekkert talað um hann nýja litla frænd minn hann heitir Viktor Daði og er búsettur í Danmörku já og hann er svo svaka flottur og duglegur. ég er mjög stolt stórafrænka og vart beðið eftir að hitta hann í eigin persónu.

en nú verð ég að fara að sofa ég er komi langt framyfir æskilegan hátta tíma