Góðverk dagsins


í dag kvennafrídagin gerði ég góðverk má vera að maður sé að grobba sig ég ætla að halda því fram að ég sé að safna í karma krukku og að ég fái þetta til baka seinna !!!!
en já ég byrjaði á því að fara í göngu í dag var þó ekki allan tíman var búinn að mæla mér mót í ræktina og fór þessvegna og náði í Guðrúnu upp á Landspítala háskóla sjúkrahús Fossvogi eða almennt nefnt LSH Fossvogi. meðan ég beið þá sá ég fullt af fólki labba inn og út af sjúkrahúsinu þarna kom kona og hún settis inní corolluna sína á eftir henni kom eldri maður með hækju og hann bankaði á rúðuna hjá konuni ég sá hann benda eitthvað á dekkið ég ákvað að kíkja á þetta því konana var kominn útúr bílunum og var hálf ringluð að sjá þegar ég kom að þá var sprungið hjá henni. Ég bauð fram aðstoð mín en hún talaði um að hún ætlaði að hringja í son sinn hann væri sko að vinna hjá Securitas ég spurði hvort við ættum ekki að sjá hvort við gættum ekki bjargað þessu. síðan skipti ég um dekk á glænýju corolluni hennar. fyrir þá sem þekkja mig þá er þetta nú ekki frásögufærandi nem hvað að fram hjá mér gengu fullt af karlmönnum og einu kommentin sem ég fékk var er ekki kvennafrídagurinn? það var ein sem bauð fram aðstoð sína þá var ég að herða rærnar og var að klára. það kom reyndar bekkjasystir Guðrúnar og hún bauð fram hjálp en ekki þessir menn.
Ekki það ég hefði ekki þegið hjálp því þetta get ég allveg.
en já þetta er það sem gerðist í dag.
Annars er ekki mikið búið að gerast ég er að vinna í ýmsum málum á ýmsum sviðum og mun það allt koma í ljós innan tíðar.
það líður hratt að prófum og ég þarf að klára nokkur verkefni hver veit nema þessi önn fari betur en þær síðustu.

<< Home