kvart kvart en enga vorkun takk
já ég er sko búinn að kvarta við alla sem ég hef talað við um helgina og mamma orðin þreytt á að heyra mig segja ái æææ en ástað þess að ég er kvartandi er að ég er búinn að vera of duglega að hreyfa mig ef það er hægt. já ég er kominn með þvílíkar harðsperrur í karlmannlegu kálfana mína ég sem hélt að þar myndi mig aldrei verkja en... en ég vill enga vorkun get sjálfri mér um kennt ég fór ío leikfimi á fimt og í göngutúr og á föst í taekwondo og svo í Badminton á laugardag. það var nota bene gríðarlega gaman í badminton og vonast til að komast aftur. annars er búið að vera að læra um helgina og það gengið svona upp og ofan það er svo margt annað spennadi að gera en nú fer maður að taka á þessu um að gera að klára einan einigu í næstu viku og svo að drífa sig í að skrifa eins og eina ritgerð og þá klára 4 einingar og þá eru bara 10 eftir á þessari önn ég vona að þetta gangi ég ætla að biðja fullt af fólki að lesa og gagnrýna ritgerðina svo að ég fái sem besta einkunn fyrir hana. það mun bæði vera fólk sem þekkir efnið og fólk sem ekkert veit um það þannig að ég sjái hvort hún sé ekki örugglega fræðandi. en já helgin það var Badminton og síðan fékk ég mjög skemmtilegt símtal það voru Lilja og Vaggi sem unnu með mér í Sölden þau hafði ég ekki séð í alltof langan tíma og voru þau svo alminnileg að hringja í mig og biðja mig að koma að borða með sér og auðvita sagði ég já og við fórum á Pizza Hut sátum lengi við að spjalla það var svaka gaman, það er allveg á hreinu að ég mun þiggja boðið um pönnsur á hvanneyri í vetur og hlakka mikið til að sjá Hvanneyri.
annars er ekki mikið að frétta en ég ætla að halda áfram að læra .
þanngað til næst sem verður innan mánaðar

<< Home